AD - September peysa - Græn
AD - September peysa - Græn
AD - September peysa - Græn

AD - September peysa - Græn

Verð
24.800 kr
Söluverð
24.800 kr

September peysa
Peysan er prjónuð úr enskri ull sem er hlý og heldur sér virkilega vel eftir mikla notkun. Bandið er örlítið litasprengt sem gefur flíkinni einstakt yfirbragð.

 

Meðhöndlun á flík
Gott er að viðra flíkina og oftast er það nóg. 
Þessi flík þolir að fara í þvottavél á ullarstillingu með ullarsápu, þeas. ef þú þekkir þvottavélina og veist að hún meðhöndlar flíkina vel. Ekki allar vélar með ullarstillingu gera það. Fyrir þá sem eru ekki í góðu sambandi við þvottavélina sína getur verið öruggast að fara með flíkina í hreinsun.
Hægt er að blettahreinsa eða handþvo með volgu vatni og mildri ullarsápu.

 

AD
Er stofnað árið 2017 af fatahönnuðinum og jógakennaranum Sigrúnu Höllu Unnarsdóttur. AD vill leggja sitt af mörkum við að skapa vistvænan feril er viðkemur framleiðslu, upplifun og notkun á fatnaði. AD vill einnig vekja athygli á þeim verðmætum sem felast í prjónaverksmiðjunni VARMA í hinum hverfula heimi fataframleiðslu á Íslandi, ekki síst í sögu- og menningarlegu samhengi.